Fréttaskot
Árlegu páskamót Skíðafélags Strandamanna fara fram þessa páskahelgi.
Laugardaginn 19 apríl kl 13:00 fer fram Krambúðarmótið á Steingrímsfjarðarheiði. Keppt verður með frjálsri aðferð.
Mánudaginn 21 apríl kl 11:00 fer fram Grímseyjarmótið á Steingrímsfjarðarheiði. Keppt verður með hefðbundinni aðferð.
Skráning fer fram á staðnum báða dagana og keppt verður í sömu vegalengdum:
8 ára og yngri - 1 km
9-10 ára - 2 km
11-12 ára - 2,5 km
13-14 ára - 3,5 km
15-16 ára - 5 km
17 ára og eldri - 2,5, 5 eða 10 km.
Öll eru velkomin og vonumst við til að sjá sem flest, hvort sem verið er að taka þátt í keppni eða til að hvetja.
Gleðilega páska!
Engin ummæli enn