Fréttabréf 11. mars er komið út
Smelltu á myndina eða tengilinn hér fyrir neðan til að lesa fréttabréfið.
Skíðaskotfimimót 12. mars 2023
Skíðaskotfimi er íþrótt sem blandar saman skíðagöngu og skotfimi. Keppt verður 12. mars, daginn eftir Strandagönguna.
Mótið er samstarfsverkefni Skíðasambands Íslands og Skíðafélags Strandamanna til kynningar á íþróttinni.
Umframtekjur skotfimimótsins fara í að kaupa búnað.
Gengnir verða 3 x 2,5 km hringir og skotið tvisvar á skotmörk með skíðaskotfimirifflum, fyrst liggjandi og síðan í standandi stöðu. Á skotsvæðunum er skotið fimm skotum í senn en fyrir hvert feilskot þarf að fara einn refsihring. Refsihringur er stuttur hringur til hliðar við brautina.
Sá keppandi sigrar sem lýkur keppni með stystan heildartíma.
Aldursflokkar í karla- og kvennaflokki:
- 11-15 ára laser rifflar
- 16-35 ára .22 kalibera rifflar
- 36 ára og eldri .22 kalibera rifflar
Skráningargjald er 7.500 kr.
Skráningu lýkur kl 23:59 fimmtudaginn 9. mars.


Fréttaskot

Ekki missa af
Skráðu þig á póstlistann okkar og við sendum þér upplýsingar um viðburði og fréttir af félaginu.