Fréttaskot
Skíðafélag Strandamanna verður með skíðagöngunámskeið dagana 22.-24. janúar og 29.-31. janúar. Skíðaskotfiminámskeið verður helgina 27.-28. febrúar. Skráning er hafin hér: https://skidafelag.is/skidagongunamskeid
Innifalið í námskeiðsgjaldi er hádegisverður á laugardeginum.
Dagskrá skíðagöngunámskeiðs er:
Föstudagur:
kl. 18-20 æfing.
Laugardagur:
kl. 10:30-12:30 fyrri æfing,
kl. 12:30-14 hádegismatur og stutt smurningsnámskeið,
kl. 14-16 seinni æfing.
Sunnudagur:
kl. 10:30-12:30 æfing og námskeiðslok.
Dagskrá skíðaskotfiminámskeiðs er:
Laugardagur:
kl. 11:00 Kynning á skíðaskotfimi í skíðaskálanum og farið yfir reglur íþróttarinnar. Eftir kynninguna verður skotæfing með skíðaskotfimirifflum.
kl. 13:00-14:00 Hádegishlé og matur í skíðaskálanum
kl. 14:00-16:00 Æfing á skíðum, tækniæfingar, farið yfir helstu aðferðir í frjálsri aðferð á skíðum.
Sunnudagur:
kl. 10:00-12:00 Skíðaskotfimiæfing, farið í tækniæfingar á skíðum og skotfimi æfð, farið sérstaklega í tæknina við að skjóta, bæði liggjandi skot og standandi skot.
kl. 12:00-13:00 Hádegishlé og matur í skíðaskálanum. Horft á myndbönd af skíðaskotfimi og farið yfir tæknina.
kl. 13:00-15:00 Æfingamót í skíðaskotfimi og námskeiðslok.

