Fréttaskot
Skíðafélag Strandamanna hélt þrjú skíðagöngunámskeið og eitt skíðaskotfiminámskeið veturinn 2026
Skíðafélag Strandamanna hélt þrjú skíðagöngunámskeið og eitt skíðaskotfiminámskeið veturinn 2026. Skíðagöngunámskeiðin fóru öll fram á Steingrímsfjarðarheiði vegna snjóleysis í Selárdalnum, en á heiðinni voru góðar aðstæður til námskeiðahalds. Vel var sótt í námskeiðin og þökkum við þátttakendum, þjálfurum og öðrum sjálfboðaliðum kærlega fyrir veitta aðstoð.
Skíðaskotfiminámskeið SFS fór fram í Selárdal, á nýju skíðaskotfimisvæði félagsins. Námskeiðið var vel sótt og heppnaðist vel. Okkur hlakkar til að taka á móti enn fleirum næsta vetur í vonandi meiri snjó á nýja skotsvæðinu okkar.
Engin ummæli enn

