Fréttaskot
Skíðamóts Íslands í skíðagöngu fór fram á Ólafsfirði 27.-30. mars.
Við þökkum Skíðafélagi Ólafsfjarðar kærlega fyrir einstaklega vel heppnað Skíðamót Íslands en þrátt fyrir að veður og veðurspá setti strik í reikninginn og þyrfti að fresta upphafi mótsins um tvo daga þá var virkilega vel gert að ná að halda alla fjórar keppnisgreinarnar frá laugardegi til mánudags og við að mestu leyti alveg frábærar aðstæður nema á sunnudeginum þegar veðrið gerði keppendum aðeins erfitt fyrir.
Í stigakeppni héraðanna í flokki 13-16 ára var SFS bikarmeistari þriðja árið í röð og var félagið í þriðja sæti í stigakeppni fullorðinsflokka 17 ára og eldri.
Stúlkur 13-14 ára:
Ásdís Helga Ingólfsdóttir 2. með 855 stig
Álfrún Áslaug Steinunnardóttir 7. með 438 stig
Ísafold Lilja Óskarsdóttir 8. með 388 stig
Íris Jökulrós Ágústsdóttir 9. með 362 stig
Hekla Karitas Þorgeirsdóttir 10. með 333 stig
Guðrún Ösp Vignisdóttir 13. með 296 stig
Aníta Rós Kjartansdóttir 15. 275 stig
Drengir 13-14 ára:
Friðgeir Logi Halldórsson 1. með 1360 stig
Kristvin Guðni Unnsteinsson 7. með 120 stig
Stúlkur 15-16 ára:
Birna Dröfn Vignisdóttir 1. með 1225 stig
Elma Dögg Sigurðardóttir 3. með 720 stig
Drengir 15-16 ára:
Jökull Ingimundur Hlynsson 1. með 1340 stig
17-18 ára karlar:
Matas Zalneravicius 2. með 680 stig
19-20 ára konur:
Þórey Dögg Ragnarsdóttir 2. með 770 stig
Konur 17 ára og eldri:
Þórey Dögg Ragnarsdóttir 2. með 725 stig
Karlar 17 ára og eldri:
Mats Zalneravicius 3. með 617 stig
Við óskum öllum okkar keppendum innilega til hamingju með frábæran árangur á Skíðamóti Íslands og á öllum bikarmótunum fjórum í vetur, við erum virkilega stolt af öllum í okkar frábæra skíðagönguliði.
Við þökkum öllum þeim fjölmörgu sem aðstoðað hafa okkur við keppnisferðir vetrarins, foreldrum sem hafa farið með í ferðirnar og verið hluti af liðinu eða lagt ýmislegt til í ferðirnar t.d. mat eða bíla. Við þökkum einnig þeim sem styrkt hafa ferðasjóðinn okkar, t.d. með fjárframlögum, flöskusöfnunum eða í gegnum aðrar fjáraflanir
Við þökkum Hlyni Kristinssyni sem tók þessar glæsilegu myndir og gaf okkur leyfi til birtingar þeirra.

