Fréttaskot
Skíðamót Íslands í skíðaskotfimi var haldið laugardaginn 11. apríl í nýju skíðaskotfimisvæði Skíðafélags Strandamanna í Selárdal við Steingrímsfjörð sem tekið var í notkun með vígsluathöfn fyrir rúmum mánuði síðan. Vegna slæmrar veðurspár fyrir sunnudaginn var keppni í mótinu flýtt og keppt í tveimur greinum á laugardeginum.
Fyrra skíðaskotfimimótið var ræst með einstaklingsstarti, skotið 2 sinnum 5 skotum og genginn 1 refsihringur fyrir hvert skot sem geigaði.
Seinna skíðaskotfimimótið var ræst með hópstarti, skotið 2 sinnum 5 skotum og bættist tímarefsing við tíma hvers keppanda fyrir hvert skot sem missti marks.
26 keppendur tóku þátt í mótinu, öll úrslit mótsins er að finna á timataka.net. Keppt var í þremur aldursflokkum karla og kvenna, sigurvegarar í hverjum flokki eru um leið Íslandsmeistarar í skíðaskotfimi.
Skíðaskotfimi einstaklingsstart, refsihringir innan sviga:
Stúlkur 11-13 ára 3 km1.
Ásdís Helga Ingólfsdóttir SFS 10.25 (0)2.
Ísafold Lilja Óskarsdóttir SFS 11.02 (0)3.
Álfrún Áslaug Steinunnardóttir SFS 11.18 (0)
Drengir 11-13 ára 3 km1.
Haraldur Vignir Ingólfsson SFS 11.20 (1)2.
Halldór Logi Óskarsson SFS 11.26 (0)
Stúlkur 14-15 ára 4,5 km1.
Viktoría Rós Guseva SKA 15.54 (0)2.
Birna Dröfn Vignisdóttir SFS 16.00 (0)3.
Karen Emilía Káradóttir SKA 18.18 (0)
Drengir 14-15 ára 4,5 km1.
Jökull Ingimundur Hlynsson SFS 13.59 (2)2.
Friðgeir Logi Halldórsson SFS 14.31 (2)
Konur 16 ára og eldri 6 km1.
Þórey Dögg Ragnarsdóttir SFS 28.29 (4)2.
Arna Friðriksdóttir Ullur 32.20 (2)
Karlar 16 ára og eldri 7,5 km1.
Stefán Snær Ragnarsson Ullur 24.57 (5)2.
Ragnar Kristinn Bragason SFS 25.42 (2)3.
Matas Zalneravicius SFS 25.45 (4)
Skíðaskotfimi hópstart:
Stúlkur 11-13 ára 3 km1.
Ásdís Helga Ingólfsdóttir SFS 11.30 (0)2.
Hekla Karitas Þorgeirsdóttir SFS 12.39 (0)3.
Ísafold Lilja Óskarsdóttir SFS 12.40 (0)
Drengir 11-13 ára 3 km1.
Haraldur Vignir Ingólfsson SFS 12.02 (0)2.
Halldór Logi Óskarsson SFS 12.03 (0)
Stúlkur 14-15 ára 4,5 km1.
Viktoría Rós Guseva SKA 16.56 (0)2.
Birna Dröfn Vignisdóttir SFS 18.05 (1)3.
Karen Emilía Káradóttir SKA 19.39 (0)
Drengir 14-15 ára 4,5 km1.
Jökull Ingimundur Hlynsson SFS 14.39 (0)2.
Friðgeir Logi Halldórsson SFS 15.37 (0)
Konur 16 ára og eldri 6 km1.
Þórey Dögg Ragnarsdóttir SFS 30.45 (2)
Karlar 16 ára og eldri 7,5 km 1.
Matas Zalneravicius SFS 24.43 (1)2.
Ragnar Kristinn Bragason SFS 27.45 (2)3.
Stefán Snær Ragnarsson Ullur 29.09 (7)
Skíðafélag Strandamanna þakkar öllum keppendum mótsins fyrir þátttökuna, starfsfólk mótsins fær kærar þakkir fyrir vel unnin störf og Skíðaskotfiminefnd og framkvæmdastjóri SKÍ fá þakkir fyrir gott samstarf við undirbúning mótsins.
Í lok mótsins í gær voru afhent verðlaun fyrir 3 efstu í hverjum flokki í bikarkeppni SKÍ í skíðaskotfimi 2026:
Stúlkur 11-13 ára
1. Ísafold Lilja Óskarsdóttir SFS
2. Ásdís Helga Ingólfsdóttir SFS
3. Sandra Ösp Jónsdóttir Ullur
Drengir 11-13 ára
1. Halldór Logi Óskarsson SFS
2. Haraldur Vignir Ingólfsson SFS
3. Björgvin Bjarkan Heimisson SÓ
Stúlkur 14-15 ára
1. Viktoría Rós Guseva SKA
2. Karen Emiliía Káradóttir SKA
3. Birna Dröfn Vignisdóttir SFS
Drengir 14-15 ára
1. Jökull Ingimundur Hlynsson SFS
2. Friðgeir Logi Halldórsson SFS
3. Einar Ernir Eyþórsson SKA
Konur 16 ára og eldri
1. Þórey Dögg Ragnarsdóttir SFS
2. Edda Vésteinsdóttir Ullur
3. Vala Kristín Georgsdóttir Ullur
Karlar 16 ára og eldri
1. Matas Zalneravicius SFS
2. Ragnar Kristinn Bragason SFS
3. Stefán Snær Ragnarsson Ullur
Þar sem Skíðamót Íslands í skíðaskotfimi er lokamótið í bikarmótaröðinni í Skíðaskotfimi þá voru einnig veitt verðlaun fyrir stigahæsta liðið í samanlagðri stigakeppni félaganna bæði í flokkum 11-15 ára og í 16 ára og eldri, í báðum flokkunum var Skíðafélag Strandamanna stigahæsta liðið.


