Fréttaskot
Skíðafélag Strandamanna tekur þátt í Sameinumst á Ströndum annað árið í röð og ætlar að bjóða upp á skíðaskotfimimót á hjólaskíðum laugardaginn 9. ágúst kl 11:00.
Keppt verður í flokkum 11-14 ára og 15 ára og eldri. Skotið verður úr skíðaskotfimi laser rifflum. Mótið sjálft verður haldið inni á Hólmavík og er mæting við vigtarskúrinn á höfninni.
Öll áhugasöm er velkomið að skrá sig og taka þátt. Þátttökugjald er 1500 kr fyrir 11-14 ára og 3000 kr fyrir 15 ára og eldri.
Við hvetjum einnig sem flesta að koma og fylgjast með þessum skemmtilega viðburði.
Skráning fer fram á skidafelagstrandamanna@gmail.com.
Engin ummæli enn

