Fréttaskot
Skíðaskotfimi er íþrótt sem blandar saman skíðagöngu og skotfimi. Keppt verður 10. mars, daginn eftir Strandagönguna. Umframtekjur skotfimimótsins fara í að greiða fyrir búnað sem við höfum verið að fjárfesta í.

Gengnir verða 3 x 2,5 km hringir og skotið tvisvar á skotmörk með skíðaskotfimirifflum, fyrst liggjandi og síðan í standandi stöðu. 11-15 ára ganga styttri vegalengdir. Á skotsvæðunum er skotið fimm skotum í senn en fyrir hvert feilskot þarf að fara einn refsihring. Refsihringur er stuttur hringur til hliðar við brautina. Sá keppandi sigrar sem lýkur keppni með stystan heildartíma.
Hæg er að skrá sig á netskraning.is. Skráningu lýkur kl 23:59 fimmtudaginn 7. mars.
Í hádeginu á sunnudeginum verður í boði að kaupa kjötsúpu á aðeins 2.500 kr, og rennur sú fjárhæð beint í kaup á skíðaskotfimibúnaði.